Íslandsmeistarar Vals í handknattleik karla hefja titilvörnina í Mosfellsbæ fimmtudaginn 8. september samkvæmt frumdrögum að leikjadagskrá Olísdeildar karla sem HSÍ hefur gefið út. Samkvæmt drögunum fara fjórir af sex leikjum fyrstu umferðar fram 8. september. Þar á meðal er viðureign Aftureldingar og Íslandsmeistara Vals að Varmá.
Fram, sem leikur í nýju og glæsilegu íþróttahúsi í Úlfarsárdal frá og með næsta keppnistímabili, fær heimaleik í fyrstu umferð á móti Selfossi á fyrsta leikdegi. Haukar taka á móti KA og Grótta fær nýliða ÍR í heimsókn sama kvöld.
Fyrstu umferð lýkur föstudaginn 9. september þegar nýliðar Harðar mæta ÍBV í Vestmannaeyjum og FH og Stjarnan leiða saman hesta sína í Kaplakrika.
1. umferð Olísdeildar karla: Fimmtudagur 8. september: Fram - Selfoss. Fimmtudagur 8. september: Afturelding - Valur. Fimmtudagur 8. september: Haukar - KA. Fimmtudagur 8. september: Grótta - ÍR. Föstudagur 9. september: ÍBV - Hörður. Föstudagur 9. september: FH - Stjarnan.
Stefnt er á að ljúka 13 umferðum af 22 fyrir jól og að síðustu leikir ársins 2022 í Olísdeildinni fari fram laugardaginn 17. desember. Þráðurinn verður tekinn upp sunnudaginn 5. febrúar og stefnt að því að leikir síðustu umferðar verði háðir mánudaginn 10. apríl, á öðrum degi páska.
Nánar er hægt að skoða frumdrög að leikjadagskrá Olísdeildar karla hér.