- Auglýsing -
- Auglýsing -

Hilmar Ágúst starfar áfram við hlið Sigurðar

Grétar Þór Eyþórsson formaður handknattleiksdeildar ÍBV t.v. ásamt Hilmari Ágústi Björnssyni. Mynd/ÍBV
- Auglýsing -

Hilmar Ágúst Björnsson sem starfað hefur við hlið Sigurðar Bragason við þjálfun meistaraflokks kvenna og U-liðsins hjá ÍBV undanfarin ár hefur ákveðið að halda áfram störfum sínum. Því til staðfestingar skrifaði hann á dögunum undir tveggja ára samning við handknattleiksdeild ÍBV.


Hilmar hefur þjálfað yngri flokka hjá ÍBV í fjölmörg ár með góðum árangri og hefur staðið sig vel í þjálfun meistaraflokks og U-liðsins, að því er segir í tilkynningu handknattleiksdeildar ÍBV.



„Við erum afar ánægð með að hafa náð samkomulagi við Hilmar og hlökkum til áframhaldandi samstarfs,“ segir ennfremur í fyrrgreindri tilkynningu.


Fyrr í þessum mánuði skrifaði Sigurður undir nýjan samning ÍBV.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -