- Auglýsing -
- Auglýsing -

Guðni verður Þóri til halds og trausts

Guðni Ingvarsson, aðstoðarþjálfari karlaliðs Selfoss. Mynd/Selfoss
- Auglýsing -

Guðni Ingvarsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari Selfoss í meistaraflokks karla í handknattleik. Guðni verður nýráðnum þjálfara liðsins, Þóri Ólafssyni innan handar.



Guðni hlaut sitt handboltalega uppeldi á Selfossi, þar sem hann lék svo sín fyrstu ár í meistaraflokki. Hann lék einnig nokkur ár í Vestmannaeyjum og tók einn vetur í Gróttu áður en hann sneri aftur heim á Selfoss. Guðni varð bikarmeistari með ÍBV og Íslandsmeistari bæði með ÍBV og Selfossi.



„Guðni var leiðtogi sem leikmaður og mun hafa sterka rödd inn í hópinn. Það er frábært að fá hann á ný inn í félagið,“ segir í tilkynningu frá handknattleiksdeild Selfoss í dag.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -