- Auglýsing -
Hafnarfjarðarmótið í handknattleik karla hefst í kvöld á Ásvöllum þar sem allar viðureignir mótsins fara fram þetta árið. Auk Hauka og FH taka Stjarnan og nýkrýndir Ragnarsmótsmeistarar ÍBV þátt í mótinu. Tveir leikir fara fram í kvöld, aðrir tveir á miðvikudaginn og síðustu viðureignirnar verða á föstudaginn. Flautað verður til leiks klukkan 18 og 20 í kvöld og 17 og 19 á föstudaginn.
Hafnarfjarðarmótið – mánudagur:
Ásvellir: Haukar – ÍBV, kl. 18.
Ásvellir: FH – Stjarnan, kl. 20.
Allir leikir mótsins verða sendir út á Haukartv sem er finna á YouTube.
Að vanda verður opið hús á Ásvöllum fyrir þá sem vilja mæta á svæðið og fylgjast með og hvetja sitt lið.
- Auglýsing -