Heilbrigðisráðherra getur veitt undanþágu til æfinga liða í næsta efstu deild eftir því sem fram kemur í reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar sem gefin var út í dag. Hinsvegar eru engar undanþágur mögulegar fyrir æfingar ungmenna 16-20 ára sem eiga á tíðum sæti í þeim liðum sem taka þátt í keppni í næst efstu deild.
Í 8 grein reglugerðarinnar segir m.a.:„Ráðherra getur veitt undanþágur frá banni við íþróttastarfi fyrir einstaka viðburði, svo sem vegna alþjóðlegra keppnisleikja hér á landi eða vegna æfinga í næstefstu deild sérsambands Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands ef hún er skilgreind á sama afreksstigi og efsta deild, enda sé gætt fyllstu sóttvarnaráðstafana að öðru leyti.“
Reglugerðina í heild er hægt að lesa hér.