Teitur Örn Einarsson og félagar í Flensburg unnu pólska meistaraliðið Kielce með sex marka mun, 38:32, á fjögurra liða æfingamóti í Veszprém í Ungverjalandi í gær. Teitur Örn skoraði fjögur mörk og lék allan leikinn í hægra horni vegna þess að Johan Hansen var fjarverandi vegna meiðsla. Haukur Þrastarson skoraði tvö mörk fyrir Kielce.
Bjarki Már Elísson lék ekki með Veszprém gegn Kiel á ofangreindu móti í gær, 34:27. Veszprém sagði frá því fyrir leikinn að Bjarki Már væri lítillega meiddur og sæti þar af leiðandi yfir eins og Gasper Marguc sem einnig er á sjúkralista.
Mariam Eradze var markahæst hjá Val með sex mörk og Thea Imani Sturludóttir var næst með fimm mörk þegar Valur vann Benidorm, 33:16, í leik á þriggja liða móti í Albír á Spáni í gær. Sara Sif Helgadóttir varði níu skot í marki Vals og Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir varði sex skot.
Barcelona vann stórsigur á Handbol Esplugues, 41:22, í undanúrslitum í Katalóníubikarnum gær. Evrópumeistararnir mæta Granolles í úrslitaleik keppninnar í kvöld.