Talið er að á sjöunda hundrað manns hafi komið saman í Hertzhöllinni á Seltjarnarnesi í gærkvöld á minningarleik um Ásmund Einarsson fyrrverandi formann handknattleiksdeildar Gróttu sem lést um aldur fram síðla í júlí.
Kvennalið Gróttu og U18 ára landslið Íslands mættust í skemmtilegum leik sem Grótta vann, 25:24. Katrín Anna, dóttir Ásmundar, lék fyrri hálfleik með U18 ára landsliðinu en var með Gróttu í þeim síðari. Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson dæmdu leikinn.
Áður en flautað var til leiks var Ásmundar minnst með einnar mínútu þögn.
Innkoma aðgangseyris og sjoppu rann í styrktarsjóð barna hans: 512-26-204040, kt. 700371-0779. Áfram verður hægt að leggja af mörkum í styrktarsjóðinn.
Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir frá kvöldstundinni í Hertzhöllinni sem Eyjólfur Garðarsson tók. Mikið fleiri myndir Eyjólfs er að finna á: https://photos.app.goo.gl/7QhFMDGby1LqWKij7