Þriðju umferð Olísdeildar kvenna lýkur í dag með tveimur leikjum sem fram fara í Kórnum og á Ásvöllum í Hafnarfirði. Þar mætast einnig liðsmenn Hauka og Aftureldingar í síðasta leik fimmtu umferðar Olísdeildar karla fljótlega eftir að viðureign Hauka og Selfoss í Olísdeild kvenna rennur á enda.
Í Kórnum hefja leik klukkan 14, HK og ÍBV, í Olísdeild kvenna.
Selfoss sækir nýliða Harðar heim á Ísafjörð. Flautað verður til leiks klukkan 16.
Ungmennalið Fram sækir Þórsara heim í íþróttahúsið í Dalvík klukkan 16. Ár og dagur eru liðin síðan meistaraflokksleikur fór fram á Dalvík en árshátíð kemur í veg fyrir að hægt verði að leika í Höllinni á Akureyri þar sem heimaleikir Þórsara fara fram alla jafna.
Í kvöld mætast KA/Þór og HC Gjorche Petrov frá Norður Makedóníu öðru sinni í KA-heimilinu í fyrstu umferð Evrópubikarkeppninni í handknattleik kvenna. Eftir jafntefli í gærkvöld er ljóst að ekkert verður gefið eftir í KA-heimilinu í kvöld.
Leikir dagsins
Olísdeild kvenna:
Kórinn: HK – ÍBV, kl. 14 – sýndur á HKtv.
Ásvellir: Haukar – Selfoss, kl. 16 – sýndur á Stöð2sport.
Staðan í Olísdeild kvenna og næstu leikir.
Olísdeild karla:
Ísafjörður: Hörður – Selfoss, kl. 16.
Ásvellir: Haukar – Afturelding, kl. 18 – sýndur á Stöð2sport.
Staðan í Olísdeild karla og næstu leikir.
Grill66-deild kvenna:
Dalvík: Þór Ak. – Fram U, kl. 16.
Staðan í Grill66-deild kvenna og næstu leikir.
Evrópubikarkeppni kvenna, 1. umferð, síðari leikur:
KA-heimilið: KA/Þór – HC Gjorche Petrov, kl. 19.30 (20:20).
Leikurinn verður sendur út á KAtv á eftirfarandi slóð: https://www.livey.events/ka-tv