Leik Selfoss U og Vals U í Grill66 deild karla í handknattleik sem fram átti að fara í Sethöllinni á Selfossi klukkan 16 í dag hefur verið frestað vegna veðurs. Lýst hefur verið yfir hættustigi á Suðurlandi, segir í tilkynningu frá mótanefnd Handknattleikssambands Íslands.