- Auglýsing -
Ómar Ingi Magnússon leikmaður Þýskalandsmeistara Magdeburg hefur af persónulegum ástæðum dregið sig úr landsliðshópi Íslands í handknattleik fyrir leikina gegn Ísrael og Eistlandi.
Kristján Örn Kristjánsson, Donni, leikmaður franska liðsins PAUC í Frakklandi hefur verið kallaður inn í landsliðið í stað Ómars Inga. Donni hefur leikið 19 landsleiki og skoraði í þeim 19 mörk. Hann var síðast í landsliðinu á EM í Ungverjalandi í janúar.
Íslenska landsliðið mætir ísraelska landsliðinu í undankeppni Evrópumótsins á Ásvöllum á miðvikudagskvöldið klukkan 19.45. Á laugardaginn sækir íslenska landsliðið Eistlendinga heim í sömu keppni.
Smelltu hér til þess að ná þér í miða á leikinn við Ísrael á miðvikudaginn.
- Auglýsing -