- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Verður Gísli Þorgeir leikmaður októbermánaðar?

Gísli Þorgeir Kristjánsson leikmaður Magdeburg. Mynd/IHF
- Auglýsing -

Gísli Þorgeir Kristjánsson landsliðsmaður í handknattleik og leikmaður SC Magdeburg hefur farið á kostum með þýska meistaraliðinu á keppnistímabilinu á öllum vígstöðum. Skal þar engan undra að Hafnfirðingurinn kraftmikli er einn sjö leikmanna sem koma til greina í vali á leikmanni októbermánaðar í þýsku 1. deildinni.


Kosningin er hafin á netinu og stendur hún yfir fram til fimmtudags. Hægt er að taka þátt og greiða Gísla Þorgeiri atkvæði sitt á þessu hlekk.

Þar kom upp myndir af sjö handknattleiksmönnum. Greitt er atkvæði með því smella á myndir af þeim leikmanni sem manni hugnast.


Auk Gísla Þorgeirs koma til greina í kjörinu: Domenico Ebner, markvörður Hannover-Burgdorf, Christopher Bisslel, HC Erlangen, Eric Johansson, THW Kiel, Mathias Gidsel, Füchse Berlin, Hans Lindberg, Füchse Berlin, Mijajlo Marsenic, Füchse Berlin.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -