- Auglýsing -
Leikmenn Vængja Júpíters, sem hófu útgerð í Grill 66-deild karla, af miklum krafti í september en voru tilneyddir til að leggja árar í bát og draga skektu sína upp á fjörkamb þegar blátt bann var lagt við allri handknattleiksiðkun, komu saman í gærkvöld og birtu af því tilefni myndir frá æfingunni á Twitter.
Leikmenn Vængja Júpíters, eins og aðrir sem stunda handknattleik hér á landi, vonast til að heilbrigðisráðherra lini tökin á handknattleiksútgerðinni þegar líður á mánuðinn svo menn megi ýta úr vör á nýjan leik.
Aðeins þremur útgerðardögum af átján er lokið í Grill 66-deildinni og ljóst að menn verða mæta vel undirbúnir til þeirrar tarnar sem framundan er til þess að ljúka megi vetrarvertíðinni áður en sumar gengur í garð. Leikmenn Vængja Júpíters slá að minnsta kosti ekki slöku við æfingar þessa dagana en gæta vel að sóttvörnum eins og þeim ber að gera og meðfylgjandi myndir sýna.
- Auglýsing -