Starfsmanni Stjörnunnar á leik Stjörnunnar og Aftureldingar í Olísdeild karla í handknattleik karla í TM-höllinni í gærkvöld virðist hafa runnið í skap þegar Aftureldingarmenn hugðust fagna sigrinum í leikslok í gærkvöld.
Leist starfsmanninum, sem er Sigurður Bjarnason fyrrverandi formaður Stjörnunnar, landsliðsmaður og atvinnumaður í handknattleik, ekki á blikuna þegar Gunnar Kristinn Malmqust Þórsson, leikmaður Aftureldingar ætlaði að nota auglýsingaskilti TM-hallarinnar til þess að slá taktinn í fögnuðinum. Síst er of djúpt í árinni tekið þegar sagt er að Sigurður hafi ekki beitt diplómatískum aðferðum við að hindra Gunnar.
Eins og sést á myndskeiði hér fyrir neðan þá var Sigurður ekkert að tvínóna og ljóst að vægustu refsingum er ekki beitt við fyrsta broti í TM-höllinni.
Jahérna hér, voðalega eru menn litlir þarna í garðabænum, allt eðlilegt við það að starfsmaður hrindi leikmanni hjá andstæðingnum. pic.twitter.com/s2GML8Mw8p
— Gunnar Pétur Haraldsson (@gunniiip) December 4, 2022
„Ég ber aðeins í LED skilti í eigu Stjörnunnar sem er fyrir aftan mig og sparka örlítið í það og þá fæ ég, að ég tel, fyrrverandi landsliðsmann Sigurð Bjarnason á mig og hann tekur ágætlega á kallinum,“ segir Gunnar í samtali við Fréttablaðið í dag en það vakti fyrst athygli á uppákomunni í morgun.
Átti sér einskis ills von
Gunnar segist einskis hafa átt ills von þegar hann fékk Sigurð, sem er rammur að afli, skyndilega í fangið. Fleirum hafi runnið í skap en skilið sáttir þegar upp var staðið. Eftir því sem næst verður komist sést sem betur fer ekkert á skiltinu.
Hafði áhyggjur af skiltunum
„Hann hefur haft áhyggjur af skiltunum sínum. Sigurður hefur sjálfur farið í gegnum nokkra handboltaleiki og væntanlega tapað nokkrum þannig ég efast um að hann hafi reiðst út í fagnaðarsönginn okkar. Ég vona allavegana ekki, þá hefur hann ekki lært mikið.
Við sættumst bara eftir þetta, ég tók í spaðann á honum og baðst innilegrar afsökunar á þessu. Það eru tilfinningar í þessu og svona getur gerst, það er bara þannig. Maður reynir að hafa eins gaman að þessu og maður getur,“ segir Gunnar en nánar er rætt við hann í meðfylgjandi frétt Fréttablaðsins.