Færeyski landsliðsmaðurinn Vilhelm Poulsen, sem lék með Fram frá 2020 og fram á síðasta sumar, meiddist alvarlega á hné undir lok fyrri hálfleiks í viðureign Lemvig og Aalborg í dönsku úrvalsdeildinni í gær. Óttast er að færeyska skyttan verði lengi frá keppni.
Eftir því sem handbolti.is hefur fregnað þá færðist önnur hnéskelin úr stað hjá Poulsen þegar hann lenti í samstuði við varnarmann Aalborg-liðsins. Var Poulsen fluttur á spítala þar sem hann komst undir læknishendur. Á heimasíðu Lemvig er sagt að Poulsen hafi meiðst alvarlega á hné.
Poulsen hefur gert það gott með Lemvig á keppnistímabilinu og má liðið illa við að missa hann enda er það í fjórða neðsta sæti dönsku úrvalsdeildarinnar og hörð fallbarátta stendur fyrir dyrum.
Markvörðurinn Daníel Freyr Andrésson gekk einnig til liðs við Lemvig í sumar og hefur varið mark liðsins á leiktíðinni.