- Auglýsing -
Handboltinn rúllar af stað með meistarakeppni HSÍ í karla- og kvennaflokki á sunnudaginn. Í meistarakeppni kvenna mætast deildarmeistarar Fram og KA/Þór sem fékk silfur í Coca Cola bikarnum í mars. Leikurinn fer fram á heimavelli Framkvenna í Safamýri og hefst hann kl. 16.
Meistarakeppni karla fer fram á heimavelli Valsmanna í Origo höllinni, þar leika deildarmeistarar Vals og bikarmeistarar ÍBV. Leikurinn hefst klukkna 18.30.
Takmarkaður fjöldi áhorfenda verður leyfður á leikjunum en báðar viðureignir verða sýndir í beinni útsendingu á Stöð2 Sport.
- Auglýsing -