Leikið verður í Grill 66-deildum kvenna og karla í dag en viðureignum í deildunum fer óðum fækkandi á þessu ári. Viðureign Fram U og Vals U í Grill 66-deild kvenna er til að mynda sú síðasta í deildinni fram til 13. janúar á næsta ári.
Eftirvænting ríkir víða fyrir Evrópuleikjum kvennaliðs Vals og karlaliðs ÍBV í dag en bæði lið standa í ströngu. Valsliðið tekur daginn snemma í Elche á Spáni og þarf að halda vel á spilunum ætli það sér áfram í næstu umferð keppninnar að loknu fimm marka tapi í gær.
ÍBV vann Dukla Prag í höfuðborg Tékklands og stendur frammi fyrir opnu einvígi í dag þegar flautað verður til síðari viðureignarinnar.
Leikir dagsins
Grill 66-deild kvenna:
Úlfarsárdalur: Fram U – Valur U, kl. 16.
Staðan í Grill 66-deild kvenna.
Grill 66-deild karla:
Ásvellir: Kórdrengir – Fram U, kl. 17.
Staðan í Grill 66-deild karla.
Evrópubikarkeppni kvenna, 3. umferð síðari leikur:
Alicante: Club Balonmano – Elche – Valur, kl. 11 (30:25).
Evrópubikarkeppni kvenna, 3. umferð síðari leikur:
Prag: HC Dukla Prag – ÍBV, kl. 17 (33:34).