- Auglýsing -
Fyrsti leikur ársins 2023 á Íslandsmótinu í handknattleik stendur fyrir dyrum í kvöld þegar flautað verður til leiks í Grill 66-deild karla. Á Ásvöllum mætast ungmennalið Hauka og KA og verður hafist handa við kappleikinn klukkan 20.
Staðan í Grill 66-deildunum og næstu leikir.
Á morgun verður þráðurinn tekinn í Olísdeild kvenna með þremur leikjum í 11. umferð. Fjórði og síðasti leikur umferðinnar verður á sunnudaginn en nánar verður sagt frá leikjum Olísdeildar kvenna í fyrramálið.
Staðan í Olísdeild kvenna og næstu leikir.
Tekið verður til óspilltra málanna við keppni í 2. deild karla á sunnudaginn.
- Auglýsing -