Nóg verður um að vera í dag fyrir handknattleiksáhugafólk, jafnt utan lands sem innan. Tólfta umferð Olísdeildar kvenna hefst með þremur spennandi leikjum í Garðabæ, Vestmannaeyjum og á Akureyri. Einnig má búast við hörkuleik í Kaplakrika þegar efsta lið Grill66-deildar kvenna, ÍR, sækir FH heim klukkan 14.
Síðast en ekki síst verða átta leikir á dagskrá á HM karla þegar önnur umferð riðlakeppninnar hefst. Hæst ber vitanlega viðureign Íslands og Ungverjalands í Kristianstad. Flautað verður til leiks klukkan 19.30.
Að vanda stefnir handbolti.is á að gefa sem flestum leikjum dagsins einhvern gaum.
Olísdeild kvenna:
TM-höllin: Stjarnan – Valur, kl. 14 – sýndur á Stöð2sport.
Vestmannaeyjar: ÍBV – Haukar, kl. 14 – sýndur á ÍBVtv.
KA-heimilið: KA/Þór – HK, kl. 15 – sýndur á KAtv.
Staðan í Olísdeild kvenna.
Grill 66-deild kvenna:
Kaplakriki: FH – ÍR, kl. 14.
Staðan í Grill66-deild kvenna.
HM í handknattleik karla
D-riðill (Kristianstad):
Portúgal – Suður Kórea, kl. 17 – sýndur á RÚV.
Ísland – Ungverjaland, kl. 19.30 – sýndur á RÚV.
A-riðill (Kraká):
Svartfjallaland – Íran, kl. 17.
Spánn – Chile, kl. 19.30.
B-riðill (Katowice):
Frakkland – Sádi Arabía, kl. 17.
Pólland – Slóvenía, kl. 19.30.
C-riðill (Gautaborg):
Brasilía – Úrúgvæ, kl. 17.
Svíþjóð – Grænhöfðaeyjar, kl. 19.30.
Leikjadagskrá HM, staðan, riðlar.