- Auglýsing -
- Auglýsing -

HM 2023 – Milliriðlar, leikjadagskrá, staðan

Mynd/EPA
- Auglýsing -

Milliriðlakeppni heimsmeistaramótsins í handknattleik karla stendur yfir frá 18. til 23. janúar í Kraká, Gautaborg, Katowice og Malmö. Leikið verður í fjórum riðlum og komast tvö efstu lið hvers riðils áfram í átta liða úrslit sem leikin verða í Gdansk (milliriðill 1 og 3) og í Stokkhólmi (milliriðill 2 og 4) miðvikudaginn 25. janúar.

HM2023: Forsetabikarinn – úrslit, staðan

Hér fyrir neðan er leikjadagskrá milliriðlakeppninnar og staðan í riðlunum ásamt upplýsingum um hvað tekur við að henni lokinni.

Milliriðill 1 (Kraká)

18. janúar:
Íran – Slóvenía 21:38 (9:20).
Frakkland – Svartfjallaland 35:24 (16:13).
Spánn – Pólland 27:23 (16:15).
20. janúar:
Slóvenía – Spánn 26:31 (15:15).
Íran – Frakkland 29:41 (14:18).
Svartfjallaland – Pólland 20:27 (8:11).
22. janúar:
Svartfjallaland – Slóvenía 23:31 (8:15).
Íran – Pólland 22:26 (10:16).
Spánn – Frakkland 26:28 (13:13).

Standings provided by Sofascore

Milliriðill 2 (Gautaborg)

18. janúar:
Portúgal – Brasilía 28:28 (12:11).
Grænhöfðaeyjar – Ísland 30:40 (13:18).
Svíþjóð – Ungverjaland 37:28 (18:14).
20. janúar:
Grænhöfðaeyjar – Portúgal 23:35 (12:14).
Brasilía – Ungverjaland 25:28 (14:14).
Ísland – Svíþjóð 30:35 (8:11).
22. janúar:
Grænhöfðaeyjar – Ungverjaland 30:42 (15:22).
Brasilía – Ísland 37:41 (22:18).
Svíþjóð – Portúgal 32:30 (13:14).

Standings provided by Sofascore

Milliriðill 3 (Katowice)

19. janúar:
Katar – Holland 30:32 (19:15).
Þýskaland – Argentína 39:19 (24:11).
Noregur – Serbía 31:28 (14:17).
21. janúar:
Serbía – Argentína 28:22 (12:10).
Katar – Noregur 17:30 (9:14).
Holland – Þýskaland 26:33 (12:15).
23. janúar:
Katar – Argentína 22:26 (9:12).
Serbía – Holland 32:30 (15:17).
Þýskaland – Noregur 26:28 (16:18).

Standings provided by Sofascore

Milliriðill 4 (Malmö)

19. janúar:
Bandaríkin – Barein 27:32 (13:17).
Egyptaland – Belgía 33:28 (22:15).
Danmörk – Króatía 32:32 (15:16).
21. janúar:
Barein – Egyptaland, 22:26 (9:13).
Króatía – Belgía 34:26 (21:13).
Bandaríkin – Danmörk 24:33 (10:18).
23. janúar:
Bandaríkin – Belgía 24:22 (14:12).
Króatía – Barein 43:32 (17:16).
Egyptaland – Danmörk 25:30 (12:17).

Standings provided by Sofascore


*Tveir milliriðlar fara fram í Póllandi (Kraká/Katowice) og tveir í Svíþjóð (Gautaborg/Malmö). Liðin sem komast áfram í milliriðlunum í Póllandi leika í átta liða úrslitum í Gdansk Póllandi. Að sama skapi leika liðin fjögur komast áfram úr milliriðlum í átta liða úrslitum í Stokkhólmi í Svíþjóð.

*Átta liða úrslit fara fram 25. janúar en tvö efstu lið hvers milliriðils taka sæti í 8-liða úrslitum. Tveir leikir átta liða úrslita fara fram í Ergo Arena í Gdansk í Póllandi en hinar tvær í Tele2 Arena í Stokkhólmi.

*Vegna forkeppni Ólympíuleikanna á næsta ári verður leikið um 5., 6., 7. og 8. sæti mótsins (sæti 2 til 7 gefur þátttökurétt í forkeppni ÓL í mars 2024). Krossspilið verður 27. janúar í Stokkhólmi og leikir um sætin sunnudaginn 29. janúar, einnig í Stokkhólmi.

*Undanúrslit verða föstudaginn 27. janúar. Annar undanúrslitaleikurinn verður í Gdansk, hinn í Stokkhólmi.

*Ef Ísland og Svíþjóð fara bæði í undanúrslit er ljóst íslenska landsliðið þarf að fara til Póllands og leika í undanúrslitum. Svíar eiga alltaf heimaleik í undanúrslitum, jafnvel þótt þeir mæti pólska landsliðinu.

*Úrslitaleikur um heimsmeistaratitilinn og um 3. sætið verður sunnudaginn 29. janúar Tele2 Arena.

HM 2023 – leikjadagskrá, staðan, riðlakeppni

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -