- Auglýsing -
Kórónuveiran hefur stungið sér niður í lið heimsmeistara Danmerkur á heimsmeistaramótinu í handknattleik í Egyptalandi. Hornamaðurinn ungi, Emil Jakbosen hefur greinst með veiruna. Jakobsen og herbegisfélagi hans og liðsfélagi hjá GOG í Danmörk, Morten Olsson, eru komnir í einangrun fjarri öðrum í leikmannahópnum.
Þetta er fyrsta smitið sem greinist innan leikmannahóps á HM eftir að lið eru komin inn í Egyptaland. Fyrri smit sem hafa greinst í tengslum við HM hafa fundist við landamæraskimun.
Það sem vekur enn meiri athygli í þessu er að Jakobsen hefur áður greinst með kórónuveiruna. Hann var einn þeirra sem sýktist í hópsýkingu sem kom hjá danska úrvalsdeildarliði GOG í snemma í desember.
Danir hefja titilvörnina í kvöld með viðureign við Barein sem er undir stjórn Halldórs Jóhanns Sigfússonar.
- Auglýsing -