Eins og flesta daga þá verður eitthvað um að vera á handknattleiksvöllum landsins í kvöld. Vonandi verður loksins hægt að leika viðureign ÍBV og Stjörnunnar í Olísdeild kvenna.
Um er að ræða síðasta leikinn í 16. umferð. Liðin tvö eru í öðru og þriðja sæti deildarinnar. Þau mættust síðast á föstudaginn í átta liða úrslitum Poweradebikarsins. ÍBV hafði betur eins og í heimsókn sinni í TM-höllina í janúar. Stjarnan vann á hinn bóginn þegar liðin áttust við í Vestmannaeyjum í september.
Klukkan 19.45 hefst Evrópuleikurinn mikilvægi hjá Valsmönnum í Origohöllinni. Andstæðingurinn er liðsmenn TM Benidorm sem Valur vann ytra í byrjun nóvember, 32:29. Takist Val að vinna leikinn í kvöld er liðið komið með annan fótinn í 16-liða úrslit keppninnar.
Miðasala á leikinn fer fram á Tix.is – smellið hér
Olísdeild kvenna:
Vestmannaeyjar: ÍBV – Stjarnan, kl. 18 – sýndur á Stöð2sport.
Staðan í Olísdeild kvenna.
Evrópudeild karla, B-riðill:
Origohöllin: Valur – TM Benidorm, kl. 19.45 – sýndur á Stöð2sport.
Staðan í B-riðli Evrópudeildar karla:
Flensburg | 7 | 6 | 0 | 1 | 241 – 209 | 12 |
Ystads IF | 7 | 5 | 0 | 2 | 226 – 216 | 10 |
PAUC | 7 | 3 | 0 | 4 | 214 – 215 | 6 |
Valur | 7 | 2 | 1 | 4 | 228 – 235 | 5 |
FTC | 7 | 2 | 1 | 4 | 229 – 243 | 5 |
Benidorm | 7 | 2 | 0 | 5 | 214 – 234 | 4 |
Aðrir leikir í riðlinum:
Ystads – FTC, kl. 17.45.
PAUC – Flensburg, kl. 19.45.
2. deild karla:
Safamýri: Víkingur U – Grótta U, kl. 19.
Staðan í 2. deild karla.