- Auglýsing -
- Andrea Jacobsen og samherjar í danska B-deildarliðinu EH Aalborg stigu skref í áttina að úrvalsdeildinni með öruggum sigri á Holstebro, 28:17, á heimavelli í gærkvöld. Andrea skoraði fjögur mörk. Berta Rut Harðardóttir skoraði ekki fyrir Holstebro sem er í þriðja sæti með 28 stig eftir 17 leiki. EH Alaborg er fjórum stigum á undan en þetta var 16. sigurleikur liðsins í röð. Bjerringbro er í öðru sæti með 28 stig og á leik til góða á EH Aalborg.
- Oddur Gretarsson skoraði fjögur mörk og Daníel Þór Ingason tvö þegar lið þeirra, Balingen-Weilstetten, gerði jafntefli í heimsókn til Lübeck-Schwartau, 23:23, í þýsku 2. deildinni í gærkvöld. Janik Schrader jafnaði metin fyrir heimaliðið þegar þrjár sekúndur voru til leiksloka. Balingen er efst með 34 stig eftir 21 leik.
- Tumi Steinn Rúnarsson skoraði eitt mark þegar Coburg tapaði á heimavelli í hörkuleik við TuS N-Lübbecke, 35:32, í gærkvöld. Örn Vésteinsson Östenberg skoraði ekki fyrir TuS N-Lübbecke sem komst upp í annað sæti deildarinnar með 31 stig eftir 21 leiki. Eisenach er í þriðja sæti tveimur stigum á eftir en á leik til góða. Coburg er í 10. sæti með 20 stig.
- Hannes Jón Jónsson og lærisveinar hans í Alpla Hard unnu HSG Graz, 29:28, á heimavelli í gærkvöld í austurrísku 1. deildinni í handknattleik. Sigurmarkið var skorað á elleftu stundu. Sigurinn treystir stöðu Alpla Hard í þriðja sæti deildarinnar.
- Cléopâtre Darleux markvörður franska landsliðsins í handknattleik kvenna og leikmaður Brest Bretagne í heimalandi sínu er komin í leyfi meðan leitað er lausnar á hjartsláttartruflunum sem hafa valdið henni erfiðleikum upp á síðkastið.
- Auglýsing -