Aron Pálmarsson átti stjörnuleik með Aalborg Håndbold í kvöld þegar liðið vann Celje Lasko í Slóveníu í lokaumferð Meistaradeildar Evrópu í handknattleik, 34:31. Aron skoraði 10 mörk og gaf eina stoðsendingu. Hann var markahæstur hjá danska liðinu. Kristian Bjørnsen var næstur með sex mörk.
Aalborg hafnar í fimmta sæti B-riðils með 13 stig eftir leikina fjórtán og mætir væntanlega Danmerkurmeisturum GOG í fyrstu umferð útsláttarkeppninnar í næsta mánuði. GOG lagði PPD Zagreb á Fjóni í kvöld, 33:29.
Orri Freyr Þorkelsson og samherjar í Elverum gerðu jafntefli við THW Kiel, 26:26, í Terningen Arena í Elverum í kvöld. Orri Freyr skoraði tvö mörk og stóð fyrir sínu eins og fyrri daginn. Elverum er því miður úr leik í keppninni en liðið rekur lestina í B-riðli.
Viktor Gísli Hallgrímsson varði þrjú skot á þeim tíma sem hann stóð í marki Nantes í kvöld í heimsókn liðsins til ungversku meistaranna í Pick Szeged, 28:28. Nantes lýkur keppni í B-riðli í þriðja sæti og mætir liðinu sem hafnar í sjötta sæti í A-riðli í úrsláttar keppninni. Annað verður andstæðingur PPD Zagreb eða Wisla Plock.
Staðan í B-riðli:
Barcelona | 13 | 12 | 1 | 0 | 452:373 | 25 |
Kielce | 13 | 11 | 0 | 2 | 434:395 | 22 |
Nantes | 14 | 7 | 1 | 6 | 478:451 | 15 |
Kiel | 14 | 6 | 3 | 5 | 460:440 | 15 |
Aalborg | 14 | 6 | 1 | 7 | 445:438 | 13 |
Pick Szeged | 14 | 5 | 1 | 8 | 426:452 | 11 |
Celje | 14 | 3 | 0 | 11 | 412:475 | 6 |
Elverum | 14 | 1 | 1 | 12 | 398:481 | 3 |
Skoraði ekki mark
Bjarki Már Elísson var ekki á meðal markaskorar þegar lið hans Veszprém tapaði í heimsókn til PSG í París, 37:35. Veszprém hafnar í þriðja sæti í A-riðli en PSG og Magdeburg í tveimur efstu og sitja yfir í fyrstu umferð útsláttarkeppninnar eins og Barcelona og Kielce sem er afgerandi í tveimur efstu sætum B-riðils.
Staðan í A-riðli:
PSG | 14 | 12 | 0 | 2 | 492:439 | 24 |
Magdeburg | 13 | 8 | 2 | 3 | 419:386 | 18 |
Veszprém | 14 | 8 | 2 | 4 | 449:429 | 18 |
GOG | 14 | 7 | 1 | 6 | 459:454 | 15 |
Dinamo B. | 13 | 5 | 3 | 5 | 383:395 | 13 |
PPD Zagreb | 14 | 2 | 3 | 9 | 390:420 | 8 |
Wisla Plock | 13 | 3 | 1 | 9 | 346:385 | 7 |
Porto | 13 | 2 | 1 | 10 | 380:410 | 5 |
Riðlakeppni Meistaradeildarinnar lýkur annað kvöld með þremur leikjum. M.a. mæta dómararnir Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson galvaskir til leiks í Magdeburg þegar heimamenn taka á móti Dinamo Búkarest.