- Auglýsing -
- Auglýsing -

Dagskráin: Laugardalshöll og Ísafjörður

Mynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -

Leikið verður til undanúrslita í Poweradebikarkeppni karla (bikarkeppni HSÍ) í handknattleik í Laugardalshöll í kvöld. Fyrri viðureignin hefst klukkan 18 þegar leikmenn Fram og Hauka mætast. Afturelding og Stjarnan eigast við klukkan 20.15 í síðari leik undanúrslitanna. Sigurliðin mætast í úrslitaleik Poweradebikars karla í Laugardalshöll á laugardaginn klukkan 16.


Til viðbótar fer einn leikur fram í Olísdeild karla. ÍBV sækir lið Harðar heim til Ísafjarðar en leiknum var frestað fyrr í vetur.


Poweradebikar karla, undanúrslit:
Laugardalshöll: Fram – Haukar, kl. 18 – sýndur á RÚV2.
Laugardalshöll: Afturelding – Stjarnan, kl. 20.15 – sýndur á RÚV2.

Miðasala er á smáforritinu Stubbur.

Handbolti.is verður í Laugardalshöll og fylgist með báðum leikjum.


Olísdeild karla:
Ísafjörður: Hörður – ÍBV, kl. 18.

Staðan í Olísdeild karla og næstu leikir.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -