Loksins verður flautað til leiks í Olísdeild karla í handknattleik í dag. Keppni hefur legið niðri í deildinni frá því í byrjun október af ástæðum sem flestum eru væntanlega kunnugar. Til stóð að þrír leikir færu fram í deildinni í dag en í morgun var viðureign Vals og Þórs frá Akureyri frestað vegna ófærðar. Ekki er enn víst hvenær leikurinn fer fram, eftir því sem segir í tilkynningu frá HSÍ.
Vestmannaeyjar: ÍBV – Fram, kl. 13.30 – sýndur á Stöð2sport.
Kaplakriki: FH – Grótta, kl. 15 – sýndur á Stöð2sport.
Þórsarinn Geir Hólmarsson birti neðangreinda færslu á Twitter í morgun.
Næstu leikur á eftir í Olísdeildinni verða á miðvikudag og á fimmtudag.
Stöðuna í Olísdeild karla er hægt að nálgast hér.
Einn leikur er á dagskrá í Grill 66-deild kvenna í dag. Víkingur og Selfoss mætast í Víkinni klukkan 13.30.
Áhorfendum er ekki heimilaður aðgangur á leikina.