- Auglýsing -
Elvar Örn Jónsson gat ekki leikið með íslenska landsliðinu í lokaleik liðsins á heimsmeistaramótinu í handknattleik í gærkvöld, gegn Noregi. Hann var engu að síður á leikskýrslu.
Elvar Örn fékk þungt högg á síðuna í leiknum við Sviss á miðvikudaginn. Hann harkaði af sér í gegnum viðureignina við Frakka á föstudaginn en var ekki reiðbúinn í leikinn í gær.
Þar með er ljóst að a.m.k. fjórir leikmenn landsliðsins eru meiddir eftir mótið, misalvarlega. Arnór Þór Gunnarsson tók ekki þátt í tveimur síðustu leikjunum vegna stífleika í læri, eftir því sem næst er komist. Janus Daði Smárason lék aðeins í fyrsta leik mótsins vegna axlarmeiðsla sem lengi hafa reyndar hrjáð hann en urðu verri þegar á leið mánuðinn. Viggó Kristjánsson sneri sig illa á ökkla undir lok leiksins við Frakka og Elvar Örn meiddist gegn Sviss eins og áður er getið.
- Auglýsing -