- Auglýsing -
Goði Ingvar Sveinsson hefur skrifað undir lánssamning við Fjölni út leiktímabilið. Fjölnisfólk þekkir Goða vel enda uppalinn hjá félaginu. Í haust ákvað hann að söðla um og skipti yfir í Stjörnuna.
Goði Ingvar er hvalreki fyrir Fjölni en hann var næstmarkahæsti leikmaður liðsins í Olísdeildinni í fyrra með 59 mörk. Goði er fjölhæfur leikmaður og getur bæði leikið sem leikstjórnandi og skytta.
- Auglýsing -