- Auglýsing -
Elvar Örn Jónsson landsliðsmaður í handknattleik leikur ekki fleiri leiki með þýska handknattleiksliðinu MT Melsungen á yfirstandandi leiktíð. Hann meiddist á ökkla á æfingu fyrir viku og verður frá keppni í fimm til sex vikur.
Frá þessu var greint á heimasíðu Melsungen á síðasta miðvikudag. Ljóst er að handbolti.is hefur algjörlega sofnað á verðinum að þessu sinni.
Skarð er svo sannarlega fyrir skildi af fjarveru Elvars Arnar enda hefur hann leikið stórt hlutverk hjá MT Melsungen, jafnt í vörn sem sókn. Fleiri leikmenn liðsins eru á sjúkralista.
Melsungen er í níunda sæti þýsku 1. deildarinnar þegar fjórar umferðir eru eftir óleiknar.
- Auglýsing -