Ragnheiður Ragnarsdóttir hefur framlengt samningi sínum við handknattleiksdeild Hauka til næstu tveggja ára. Ragnheiður sem spilar í hægra horni er ein af reynslumestu leikmönnum liðsins og lék vel á nýliðnu keppnistímabili og skoraði m.a. 82 mörk.
Ragnheiður hefur verið mikilvægur leikmaður í liði Hauka undanfarin ár en hún lék fyrst með meistaraflokki aðeins 16 ára gömul. Þá á hún að baki marga leiki með yngri landsliðum Íslands.
„Það er ánægjulegt að hún hafi ákveðið að halda áfram að spila hjá sínu uppeldisfélagi og taka þátt í komandi verkefnum með meistaraflokki kvenna en liðið stóð sig frábærlega í nýliðinni úrslitakeppni,“ segir í tilkynningu handknattleiksdeildar Hauka í morgun.
~ Ragnheiður framlengir við Hauka til 2025 ~
— Haukar – Handbolti (@Haukarhandbolti) June 6, 2023
Ragnheiður sem spilar í hægra horni er ein af reynslumestu leikmönnum liðsins og lék afar vel á núverandi tímabil og skoraði 82 mörk. Hún hefur verið mikilvægur leikmaður í liðinu undanfarin ár en hún lék fyrst með mfl 16 ára gömul. pic.twitter.com/nCFb1Do2H0
Haukar féllu naumlega úr leik í undanúrslitum Olísdeildar eftir oddaleik við ÍBV í Vestmannaeyjum.