Leikmenn og þjálfarar sem sköruðu fram úr í Olísdeildum karla og kvenna á nýliðinni leiktíð voru veittar viðurkenningar fyrir frammistöðu sína í lokahófi HSÍ sem fram fór í hádeginu í gær í Minigarðinum. Því miður gátu ekki allir veitt viðurkenningum sínum móttöku.
Myndir: Viðurkenningar í Grill 66-deildunum
Hér fyrir neðan eru nöfn þeirra sem viðurkenningar hlutu á ásamt nokkrum myndum.
Háttvísiverðlaun HDSÍ (Handknattleiksdómarasambandið):
Blær Hinriksson, Aftureldingu.
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir, ÍBV.
Dómarar ársins:
Anton Gylfi Pálsson.
Jónas Elíasson.
Efnilegasti leikmaður Olísdeildar kvenna: Elín Klara Þorkelsdóttir, Haukum.
Efnilegasti leikmaður Olísdeildar karla: Þorsteinn Leó Gunnarsson, Aftureldingu.
Besti markvörður Olísdeildar kvenna: Marta Wawrzynkowska, ÍBV.
Besti markvörður Olísdeildar karla: Björgvin Páll Gústavsson, Val.
Besti varnarmaður Olísdeildar kvenna: Sunna Jónsdóttir, ÍBV
Besti varnarmaður Olísdeildar karla: Alexander Örn Júlíusson, Val.
Besti sóknarmaður Olísdeildar kvenna: Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir, ÍBV.
Besti sóknarmaður Olísdeildar karla: Benedikt Gunnar Óskarsson, Val.
Þjálfari ársins í Olísdeild kvenna: Sigurður Bragason, ÍBV.
Þjálfari ársins í Olísdeild karla: Snorri Steinn Guðjónsson, Val.
Besti leikmaður Olísdeildar kvenna: Elín Klara Þorkelsdóttir, Haukum.
Besti leikmaður Olísdeildar karla: Rúnar Kárason, ÍBV.
Sigríðarbikarinn: Sunna Jónsdóttir, ÍBV.
Valdimarsbikarinn: Rúnar Kárason, ÍBV.
Sigríðarbikarinn er kenndur við Sigríði Sigurðardóttur sem á sínum tíma var fyrst íslenskra kvenna til að verða valin íþróttamaður ársins eftir sigur á Norðurlandamótinu 1964. Það var Guðríður Guðjónsdóttir, dóttir Sigríðar sem afhenti Sigríðarbikarinn í gær.
Valdimarsbikarinn er kenndur við Valdimar Sveinbjörnsson leikfimikennara sem á sínum tíma hóf þjálfun og kennslu á handknattleik á Íslandi. Það var Guðmundur B. Ólafsson formaður HSÍ sem afhenti Valdimarsbikarinn.