- Auglýsing -
Andrés Gunnlaugsson hefur skrifað undir samning við Víking og kemur inn í þjálfarateymi meistaraflokks kvenna í handknattleik með Jóni Brynjari Björnssyni. Víkingur leikur í Grill 66-deildinni.
Andrés kemur í stað Halldórs Harra Kristjánssonar sem mun þó vera áfram í félaginu sem yfirþjálfari yngri flokka.
Andrés hefur komið víða við á sínum ferli og þjálfað meistaraflokk karla hjá HK og ÍR og meistaraflokk kvenna hjá ÍR, Gróttu/KR, Haukum, Fjölni, Fram og Víkingi.
„Andrés er reynslumikill þjálfari sem kemur til með að styðja og styrkja liðið í næstu skrefum. Við hjá Víkingi erum gríðarlega spennt að fá hann inn í verkefnið og bjóðum hann velkominn til starfa,“ segir í tilkynningu Víkings.
- Auglýsing -