Roland Eradze hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari Íslandsmeistara ÍBV í handknattleik karla. Ásamt því að aðstoða Magnús Stefánsson nýjan þjálfara ÍBV-liðsins mun Roland einnig sjá um markmannsþjálfun og yngri flokka þjálfun hjá félaginu, segir í tilkynningu frá ÍBV.
Roland er reynslumikill, fyrrverandi landsliðsmarkmaður Íslands. Hann spilaði handbolta á sínum tíma með Val, Stjörnunni og einnig ÍBV leiktíðina 2004/2005.
Roland hefur verið þjálfari hjá Stjörnunni, FH og Fram en síðustu þrjú ár hefur hann verið aðstoðarþjálfari úkraínska meistaraliðsins HC Motor sem spilaði meðal annars í Evrópudeildinni síðasta haust og Meistaradeild Evrópu árin þar á undan. Einnig var Roland markvarðaþjálfari karlalandsliðsins frá 2016 til 2018.
„Það er mikil gleðiefni að Roland hafi ákveðið að taka slaginn með ÍBV og hlökkum við mikið til samstarfsins,“ segir í tilkynningu ÍBV sem kemur í framhaldi af fréttum í gær um að samningaviðræður stæðu yfir á milli ÍBV og Rolands.
Þjálfarar – helstu breytingar 2023