- Auglýsing -
Markvörðurinn Arnar Þór Fylkisson hefur skrifað undir tveggja ára samning við deildarmeistara Vals. Hann kemur til Hlíðarenda frá Þór Akureyri hvar hann hefur verið aðalmarkvörður síðustu ár.
Arnór Þór kemur inn í meistaraflokkslið Vals í stað japanska markvarðarins, Sakai Motoki, sem mun vera farinn heim eftir tveggja ára veru hjá Val.
Arnar Þór er fæddur árið 1996 og er með mikla reynslu, segir í tilkynningu frá Val. Hann byrjaði að leika í meistaraflokki með Akureyri handboltafélagi og síðar með Þór eftir að upp úr samstarfi KA og Þórs slitnaði.
Karlar – helstu félagaskipti 2023
- Auglýsing -