Nóg verður að gera í fyrramálið við að draga í fyrsta og aðra umferð í Evrópukeppni félagsliða í höfuðstöðvum Handknattleikssambands Evrópu. Eins og handbolta.is sagði frá fyrr í dag þá taka ÍBV og Valur þátt í Evrópukeppni félagsliða í kvennaflokki og bíða örlaga sinna í fyrramálið.
Fjögur af 76
Fjögur íslensk karlalið verða einnig á meðal 76 liða sem dregin verða út á morgun í fyrstu og annarri umferð Evrópubikarkeppninnar. Valur og FH mætast til leiks strax í fyrstu umferð. Íslandsmeistarar ÍBV og bikarmeistarar Aftureldingar sitja yfir en verða í eldlínunni í annarri umferð keppninnar sem einnig verður dregið í á morgun.
Valur er í efri styrkleikaflokki ásamt:
- Diomidis Argous, Grikklandi.
- HC ROBE Zubri, Tékklandi.
- HC Dinamo, Serbíu.
- Mistra, Eistlandi.
- HC Käerjeng, Lúxemborg.
- Holon Yuvalim HC, Ísrael.
- Fivers, Austurríki.
- SV Brixen Handball, Ítalíu.
- Besiktas, Tyrklandi.
- RK Sloboda, Bosníu.
- IFK Handball Helsinki, Finnlandi.
FH er í neðri styrkleikaflokki ásamt: - Donbas, Úkraínu.
- Granitas-Karys, Litáen.
- Team Klaksvik, Færeyjum.
- SKKP Handball Brno, Tékklandi.
- HC Tallinn, Eistlandi.
- HC Berchem, Lúxemborg.
- Bregenz Handball, Austurríki.
- Handball Meran, Ítalíu.
- Spor Toto SK, Tyrklandi.
- HC Amber, Litáen.
- Neistin, Færeyjum.
Fyrsta umferð á að fara fram 9. og 10. september og 16. og 17. september.
64-liða úrslit
Alls bíða 52 eftir að hefja keppni þangað til í annarri umferð, 64 liða úrslit, þar á meðal ÍBV og Afturelding. Eyjaliðið verður í efri styrkleikaflokki en Afturelding í þeim neðri eins og Valur og FH ef þau komast áfram. FH og Valur verða engu að síður dregin í aðra umferð ásamt þeim liðum sem þau dragast á móti í fyrstu umferð.
Handbolti.is fylgist með þegar dregið verður í fyrramálið og skýrir frá niðurstöðum þegar þær liggja fyrir.
Nánar er hægt að kynna sér röðunina og leikdaga á meðfylgjandi skjali.