Vlado Šola hefur axlað sín skinn sem þjálfari króatíska meistaraliðsins RK Zagreb. Hann tók hatt sinn og staf í gærkvöld eftir enn eitt tap liðsins í fyrrakvöld í Meistaradeild Evrópu. Šola var aðeins fjóra mánuði í starfi en undir hans stjórn tapaði liðið hverjum leiknum á fætur öðrum en það hefur ekki unnið leik í Meistaradeild Evrópu á leiktíðinni en hinsvegar tapað 11 sinnum. Tap fyrir Arnóri Atlasyni og félögum í Aalborg Håndbold á fimmtudagskvöldið var kornið sem fyllti mælinn.
Ivica Obrvan, sem í vikunni var ráðinn landsliðsþjálfari karla í Bosníu, tekur við starfi Šola sem er þjóðhetja í Króatíu enda markvörður í sögufrægu landsliði Króata sem varð heimsmeistari fyrir 18 árum. Forveri Šola var önnur þjóðhetja, Igor Vori. Hann staldraði einnig stutt við í starfi.
Atvinnuöryggi þjálfara er lítið hjá RK Zagreb. Šola er ellefti þjálfarinn sem er látinn taka pokann sinn hjá liðinu á fimm árum eins danski handknattleiksmaðurinn Rasmus Boysen benti á, á Twittersíðu sinni í gærkvöld.
Coaches of RK Zagreb since 2016:
— Rasmus Boysen (@RasmusBoysen92) February 19, 2021
14-16: Veselin Vujović
16: Andrija Nikolić (int)
16-17: Silvio Ivandija
17: Slavko Goluža (int)
17: Kasim Kamenica
17-18: Zlatko Saračević
18: Lino Červar
19: Branko Tamše
19-20: Veselin Vujović
20: Igor Vori
20-21: Vlado Šola
21-?: Ivica Orbvan