- Auglýsing -
Vinstri hornamaðurinn Nökkvi Snær Óðinsson hefur framlengt samning sinn við Íslandsmeistara ÍBV í handknattleik.
Nökkvi Snær uppalinn Eyjamaður. Hann skoraði 30 mörk fyrir ÍBV í deildarkeppni og úrslitakeppni Olísdeildar karla á síðasta keppnistímabili.
„Nökkva þekkjum við öll enda einn mesti ÍBV-ari sem um getur og eru það frábærar fréttir að hann hafi ákveðið að halda áfram að leika með ÍBV,“ segir í tilkynningu handknattleiksdeildar ÍBV síðan í morgun.
- Auglýsing -