- Auglýsing -
HK vinnur Grill 66-deild karla í handknattleik á komandi leiktíð ef spá þjálfara, fyrirliða og forráðamanna félaganna gengur eftir. Nýliðum Kríunnar á Seltjarnarnesi er spáð öðru sæti og Fjölni þriðja sæti en Fjölnir féll í vor úr Olísdeildinni.
Fram U og Hörður reka lestina.
Röðin er sem hér segir:
1.HK
2. Krían
3. Fjölnir
4. Valur U
5. Haukar U
6. Vængir Júpíters
7. Víkingur
8. Selfoss U
9. Fram U
10. Hörður
Föstudaginn 18. september:
Hörður – Vængir Júpíters
Kría – Fram U
Laugardagur 19. september:
HK – Selfoss U
Valur – Víkingur
Sunnudagur 20. september:
Haukar U – Fjölnir
- Auglýsing -