- Auglýsing -
Þinghald verður í dag hjá dómstól Handknattleikssambands Íslands þar sem tekin verður fyrir kæra Stjörnunnar á framkvæmd leiks Stjörnunnar og KA/Þórs í Olísdeild kvenna sem fram fór í TM-höllinni laugardaginn 13. febrúar.
Eins og kom fram á handbolti.is þá var mark oftalið á lið KA/Þórs í fyrri hálfleik. KA/Þór vann viðureignina, 27:26, og réði þar með draugamarkið talsverðu um framvindu og niðurstöðu leiksins.
Munnlegur málflutningur verður fyrir dómstólnum í dag. Liðin tvö auk HSÍ hafa fyrir nokkru skilað inn greinagerðum vegna málsins.
Vonir standa til þess að niðurstaða liggi fyrir hjá dómstólnum fyrir helgina.
- Auglýsing -