Afturelding, Grótta, Selfoss berjast um að komast upp í Olísdeild kvenna í handknattleik næsta vor gangi spá þjálfara, fyrirliða og formanna liðanna í Grill 66-deildinni eftir. U-lið Fram verður í efsta sæti Grill 66-deidlarinnar en þar sem það getur ekki flust upp á milli deilda blanda það sér ekki beint í keppnina um sæti í efstu deild.
Víkingur og HK U reka lestina ef úrslit leikjanna á komandi keppnistímabili verða í takti við spána.
Röðin samkvæmt spánni er sem hér segir:
- Fram U
2. Afturelding
3. Grótta
4. Selfoss
5. Valur U
6. ÍR U
7. Fjölnir/Fylkir
8. HK U
9. Víkingur
Fyrsta umferð deildarinnar:
Föstudaginn 18. september:
Grótta – Fram U
ÍR – Fjölnir/Fylkir
Laugardaginn 19. september:
Valur U – Víkingur
Sunnudaginn 20.september:
HK U – Selfoss