Tveir leikir fara fram á Íslandsmótinu í handknattleik í kvöld. Báðar viðureignir eru liður í Olísdeild karla og eru lokaleikir úr fimmtu og sjöttu umferð. Efsta lið Olísdeildar, Haukar, sækir KA-menn heim í KA-heimilið klukkan 18. Hálftíma síðar leiða Selfoss og ÍBV saman hesta sína í suðurlandsslag í Hleðsluhöllinni á Selfossi.
Haukar hafa fengið 11 af 12 stigum mögulegum eftir að keppni hófst aftur í Olísdeildinni undir lok janúar. Á sama tíma hafa KA-menn hlotið átta af þeim 12 stigum sem þeim hafa staðið til boða.
Selfoss vann þrjá fyrstu leiki sína eftir að þráðurinn var tekinn upp aftur í deildinni en hefur beðið lægri hlut í þremur síðustu viðureignum, síðast á mánudagskvöldið á heimavelli þegar Grótta kom í heimsókn í Hleðsluhöllina. ÍBV hefur fengið fimm stig af 12 mögulegum, unnið tvo leiki, gert eitt jafntefli en tapað þremur leikjum síðan í janúar.
Eftir leikina tvo í kvöld hafa öll lið Olísdeildar lokið 11 leikjum. Keppni verður sem sagt hálfnuð.
KA-heimilið: KA – Haukar, kl. 18 – sýndur á KAtv.
Hleðsluhöllin: Selfoss – ÍBV, kl. 18.30 – sýndur á Stöð2Sport.