Þeir sem ætla sér á leiki á Íslandsmótinu í handknattleik, óháð í hvaða deild eru um að ræða, verða að skrá sig með nafni, kennitölu og símanúmeri, fyrir komu á leik eða á leikstað. Auðveldast er skrá sig rafrænt í gegnum appið Stubb sem flest eða öll félög sem á annað borð selja miða notast við. Þetta er breyting frá því í haust þegar áhorfendum var heimilt að koma á kappleiki. Þá var ekki skráningarskylda. Þetta ferli getur tekið tíma og þess vegna er best að fólk mæti í tíma til að forðast raðir.
Ekki geta öll íþróttahús tekið við 200 áhorfendum. Fjöldi áhorfenda á hverjum stað er svipaður eða sá sami og var í haust þegar áhorfendur máttu koma á leiki í fyrstu umferðum deildarinnar. Félögin kynna á samfélagsmiðlum sínum hversu margir áhorfendur geta komið í hús þeirra.
Hver áhorfandi verður að vera í eins metra fjarlægð, á allar hliðar, frá þeim næsta í áhorfendastúkunni nema um er að ræða fólk úr sömu fjölskyldu, t.d. foreldrar með börn eða hjón. Eins á fólk að halda kyrru fyrir í sætum sínum eins og kostur er á meðan á leik stendur.
Grímuskylda er hjá áhorfendum á leikjum.
Forðast ber að fólk hópist saman fyrir og eftir leik og eins í hálfleik.
Nánar er hægt að kynna sér reglurnar á þessum hlekk á heimasíðu HSÍ. Væntanlegum áhorfendum er sérstaklega bent á sjötta lið.