Fram gaf efsta sæti Olísdeildar ekki eftir nema í nokkrar mínútur því skömmu eftir að KA/Þór tyllti sér á toppinn þá renndi Fram-liðið sér upp að hlið Akureyrarliðsins með öruggum sigri á Haukum, 32:24, í Schenkerhöllinni á Ásvöllum í lokaleik 10. umferðar. Fram lagði grunn að sigrinum strax á upphafsmínútunum með kraftmikilli byrjun.
Fram var sex mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 16:10. Varnarleikur liðsins var ágætur, ólíkt því sem var hjá Haukaliðinu. Því tókst ekki eins vel upp við varnarleikinn eins og í sumum leikjum upp á síðkastið. Munurinn var mikill strax frá byrjun. Safamýrarliðið skoraði þrjú fyrstu mörkin og sjö af fyrstu átta. Þetta forskot sem liðið náði á upphafsmínútunum var Haukaliðinu um megn að vinna upp gegn reyndum leikmönnum Fram sem nýttu hraðan og skoruðu mörg mörk eftir hraðaupphlaup.
Mörk Hauka: Karen Helga Díönudóttir 5, Sara Odden 5, Berta Rut Harðardóttir 5, Hekla Rún Ámundadóttir 3, Ragnheiður Ragnarsdóttir 3, Elína Klara Þorkelsdóttir 3.
Varin skot: Annika Friðheim Petersen 8/1, 20%.
Mörk Fram: Steinunn Björnsdóttir 8, Karólína Bæhrenz Lárudóttir 6, Ragnheiður Júlíusdóttir 6/1, Lena Margrét Valdimarsdóttir 4/1, Hildur Þorgeirsdóttir 2, Karen Knútsdóttir 2, Kristrún Steinþórsdóttir 1, Stella Sigurðardóttir 1, Guðrún Erla Bjarnadóttir 1, Unnur Ómarsdóttir 1.
Varin skot: Katrín Ósk Magnúsdóttir 8, 34,8% – Sara Sif Helgadóttir 6, 40%.
Öll tölfræði leiksins hjá HBStatz.