- Auglýsing -
Skyttan öfluga, Hildur Guðjónsdóttir, hefur framlengt samning sinn við handknattleiksdeild FH til tveggja ára. Hildur, sem er uppalin hjá félaginu, varð markahæst hjá FH á síðasta tímabili með 130 mörk í 16 leikjum í Grill 66-deildinni.
Fyrsti leikur Hildar og félaga í FH í Grill 66-deildinni á komandi leiktíð verður mánudaginn 25. september gegn ungmennaliði Vals.
Leikjadagskrá Grill 66-deilda.
- Auglýsing -