- Auglýsing -
Handknattleiksmaðurinn Hergeir Grímsson var í kvöld útnefndur íþróttakarl Árborgar fyrir árið 2020. Kjörið var tilkynnt á árlegri uppskeruhátíð frístunda- og menningarnefndar sem að þessu sinni var send út á netinu frá hátíðarsalnum í Grænumörk á Selfossi eftir því sem fram kemur á vef Sunnlenska.is.
Frjálsíþróttakonan Eva María Baldursdóttir var kjörin íþróttakona Árborgar.
Hergeir, sem fékk 76 stig í kjörinu, er fyrirliði ríkjandi Íslandsmeistara Selfoss í handbolta.
Við athöfnina í kvöld fékk Handknattleiksdeild Selfoss hvatningarverðlaun frístunda- og menningarnefndar Árborgar fyrir öflugt starf yngri flokka og uppbyggingu deildarinnar á undanförnum árum.

- Auglýsing -