- Auglýsing -
- Auglýsing -

Dregið á morgun – ÍBV verður í efri flokki

Birna Berg Haraldsdóttir leikmaður ÍBV var markahæst hjá Eyjaliðinu í Hekluhöllinni. Mynd/Egill Bjarni Friðjónsson
- Auglýsing -

ÍBV verður í efri stykleikaflokki þegar dregið verður í 32-liða úrslita Evrópubikarkeppni kvenna í handknattleik í fyrramálið.

Það kemur þó ekki í veg fyrir Eyjaliðið getur mætt sterkum liðum. M.a. liða sem eru í neðri styrkleikaflokki er BM Elche sem sló út KA/Þór fyrir tveimur árum og Val á síðasta ári.

Annað spænskt lið, Granollers, verður í pottinum auk kunningja ÍBV frá síðustu leiktíð, Madeira Andebol SAD, sem lagði ÍBV í tveimur viðureignum í 32-liða úrslitum keppninnar fyrir ári.

Kósovó eða Færeyjar?

Fleiri lið sem Íslendingum eru að góðu kunn eru í neðri flokknum og geta dregist gegn ÍBV. Má þar m.a. nefna KHF Istogu, meistaralið Kósovó, og færeyska liðið Neistan en mikil gróska er handknattleik í Færeyjum.


Leikir 32-liða úrslita eiga að fara fram 11. og 12. nóvember annars vegar og 18. og 19. nóvember hinsvegar.
Hér fyrir neðan eru nöfn þeirra 16 liða sem verða í neðri styrkleikaflokknum og ÍBV getur dregist á móti.

Flokkur 2:

KTSV Eupen / Belgíu.
ZRK Krivaja / Bonsíu.
ŽRK Dugo Selo ’55 / Króatíu.
ATTICGO Bm Elche / Spáni.
KH-7 BM. Granollers / Spáni.
Neistin / Færeyjum.
AESH Pylea Thessaloniki / Grikklandi.
SSV Brixen Südtirol / Ítalíu.
KHF Istogu / Kósovó.
Swieqi RGF Malta Phoenix / Möltu.
Westfriesland SEW / Hollandi.
Madeira Andebol SAD / Portúgal.
ZRK Izola / Slóveníu.
ZRK Mlinotest Ajdovscina / Slóveníu.
HK Slovan Duslo Sala / Slóvakíu.
Ankara Yenimahalle BSK / Tyrklandi.

Flokkur 1:

ZRK Bjelovar / Króatíu.
Hazena Kynzvart / Tékklandi.
Rocasa Gran Canaria / Spáni.
O.F.N. Ionias / Grikklandi.
ÍBV.
Maccabi Haarazim Ramat Gan / Ísrael.
Jomi Salerno / Ítalíu.
SSD Handball Erice ARL / Ítalíu.
HC Gjorche Petrov-WHC Skopje / N-Makedóníu.
ORK Rudar / Svartfjallalandi.
Cabooter HandbaL Venlo / Hollandi.
Sport Lisboa e Benfica / Portúgal.
HV Herzogenbuchsee / Sviss.
MSK IUVENTA Michalovce / Slóvakíu.
Armada Praxis Yalikavaspor / Tyrklandi.
Konyaalti BSK / Tyrklandi.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -