- Auglýsing -
Handknattleiksmarkvörðurinn Petar Jokanovic hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Handknattleiksdeild ÍBV. Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebook-síðu ÍBV.
Jokanovic hefur leikið með ÍBV undanfarin tvö tímabil og sett sitt mark á liðið. M.a. átti hann stóran hlut í sigri liðsins í bikarúrslitunum fyrir ári síðan er ÍBV lagði Stjörnuna í úrslitaleik.
Í tilkynningu ÍBV segir m.a. að Jokanovic líki vel lífið í Vestmannaeyjum. „Við erum ótrúlega ánægð með að hafa náð samkomulagi um áframhaldandi veru hans hjá félaginu og það er mikilvægur þáttur fyrir átökin í Olísdeildinni næstu árin,” segir ennfremur í tilkynningunni.
- Auglýsing -