- Auglýsing -
Tveir leikir verða á dagskrá Íslandsmótinu í handknattleik í kvöld. Reynt verður öðru sinni í kvöld að koma leik HK og KA/Þórs í Olísdeild kvenna af stað. Viðureigninni var frestað í gær vegna ófærðar og illviðris. Samkvæmt korti á heimsíðu Vegagerðarinnar er Holtavörðuheiðin enn lokuð þegar þetta er skrifað klukkan 11.25. Auk þess er veður ekki gott á norðan-, og vestanverðu landinu.
Til viðbótar mætast tvö efstu lið Grill 66-deildar kvenna í Framhúsinu í kvöld.
Olísdeild kvenna:
Kórinn: HK – KA/Þór, kl. 18 – sýndur á HKtv.
Staðan í Olísdeild kvenna.
Grill 66-deild kvenna:
Framhús: Fram U – Valur U, kl. 19.30.
Staðan í Grill 66-deild kvenna.
- Auglýsing -