- Auglýsing -
Sigurmark hollenska landsliðsins, undir stjórn Eyjamannsins Erlings Richardssonar, gegn Pólverjum á síðasta sunnudag var valið besta markið í syrpu með fimm flottustu mörkum síðustu umferðar í undankeppni EM sem fram fór um síðustu helgi. Hollendingar unnu leikinn sem fram fór í Wroclaw í Póllandi, 27:26, með sigurmarkið á síðustu sekúndu leiksins. Sigurinn fór langt með að tryggja Erlingi og hollenska landsliðinu sæti í lokakeppni EM sem fram fer í Ungverjalandi og Slóvakíu í janúar næstkomandi.
Hér er myndskeið með fimm flottustu mörkum síðustu umferðar og ljóst er að valið hefur verið erfitt.
- Auglýsing -