Norska handknattleikskonan Henny Reistad var valin sú besta á heimsmeistaramótinu í handknattleik kvenna sem lauk í Danmörku í kvöld með sigri Frakka á Noregi í úrslitaleik, 31:28.
Reistad lék afar vel á mótinu, ekki síst í undanúrslitaleiknum gegn Dönum á föstudaginn þegar hún skoraði 15 mörk í 17 skotum.
Eftir tapið í úrslitaleiknum í kvöld sagði Reistad frá því að flensuskítur hafi hrjáð sig undanfarna daga sem hafi komið niður á henni þegar á hólminn var komið í kvöld.
Reistad varð einnig næst markahæst á mótinu með 52 mörk í átta leikjum.
Marketa Jerabkov, Tékklandi, skoraði flest mörk allra á mótonu 63 í 110 skotum, 57% nýting. Sjö marka sinni skoraði sú tékkneska úr vítaköstum.
Þrjár franskar handknattleikskonur eru úrvalsliðinu, tvær frá Noregi, tvær sænskar og ein dönsk.
Að þessu sinni fór fram val á besta unga leikmanni mótsins. Fyrir valinu varð Viola Leuchter frá Þýskalandi. Hún skoraði 25 mörk, gaf 14 stoðsendingar og stal boltanum sjö sinnum af andstæðingum sínum.
Úrvalslið HM 2023:
