- Auglýsing -
Tveir leikir verða á dagskrá í Olísdeild karla í kvöld. KA og Fram hafa nú endurheimt færeysku landsliðsmennina eftir leiki þeirra með landsliðinu á dögunum og sóttkvíarferli sem tók við eftir að þeir sneru aftur til Íslands. Hvort lið átti tvo leikmenn í færeyska landsliðinu sem tók þátt í þremur landsleikjum í undankeppni EM á dögunum.
Olísdeild karla:
KA-heimilið: KA – Stjarnan, kl. 18 – sýndur á KAtv.
Austurberg: ÍR – Fram, kl. 19.30 – sýndur á Stöð2Sport.